Móttaka framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026
Móttaka framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026 í Vesturbyggð verður í ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði, föstudaginn 10. apríl kl. 12:00
Skrifað: 8. apríl 2026
Gögn sem þurfa að fylgja framboðum eru tilkynning um framboð þar sem fram kemur heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstafur þeirra. Einnig þarf að tilkynna hverjir tveir eru umboðsmenn listans ásamt samþykki þeirra. Jafnframt skal skila framboðslista með undirrituðu samþykki frambjóðenda sem má vera með rafrænni undirritun eða á pappír. Vesturbyggð býður framboðum að skila undirskriftum í rafrænu meðmælakerfi.
Berist engir framboðslistar verða kosningar óbundnar til sveitarstjórnar í Vesturbyggð. Við óbundnar kosningar eru kjörgengir í sveitarstjórn hver sá sem hefur kosningarétt í sveitarfélaginu samkvæmt 4. grein, og hafa óflekkað mannorð.
Samkvæmt 49. grein kosningalaga, 4. málsgrein er þeim sem kjörgengir eru, heilir og hraustir og yngri en 65 ára skylt að taka kjöri í sveitarstjórn.
Þeim sem setið hefur í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur er ekki skylt að taka kjöri fyrr en liðinn er jafnlangur tími og hann átti þar samfellt sæti síðast, enda tilkynni hann yfirkjörstjórn sveitarfélags áður en framboðsfrestur rennur út að hann skorist undan endurkjöri.
Þeir sem vilja nýta sér þennan rétt samkvæmt ákvæði 49. gr. kosningalaga, 5. málsgrein, er bent á að senda tölvupóst á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is fyrir kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 10.04.2026 þar sem viðkomandi tilkynnir að hann biðjist undan kjöri í sveitarstjórn.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu landskjörstjórnar eða hjá yfirkjörstjórn Vesturbyggðar.
Finnbjörn Bjarnason, formaður, sími 892 7890.
Sigurvin Hreiðarsson, sími 891 8520.
Edda Kristín Eiríksdóttir, sími 831 9675.