Hoppa yfir valmynd

Móttöku­áætlun fyrir nýja íbúa af erlendum uppruna

Sveit­ar­fé­lagið hefur tekið í notkun nýja móttöku­áætlun fyrir nýja íbúa af erlendum uppruna með það að mark­miði að bæta upplýs­inga­gjöf og auðvelda nýjum íbúum að nálgast helstu upplýs­ingar um þjón­ustu og samfé­lagið. Meðal þess sem nú er aðgengi­legt er ný upplýs­inga­síða með helstu upplýs­ingum um fyrstu skrefin á Íslandi, ásamt gagn­virku korti sem sýnir helstu þjón­ustu í sveit­ar­fé­laginu.


Skrifað: 13. maí 2026

,

Móttökuáætlunin felur annars vegar í sér sérstakt upplýsingabréf sem sent er til allra nýrra íbúa af erlendum uppruna þegar þeir flytja í sveitarfélagið. Þar eru teknar saman helstu praktísku upplýsingar sem geta komið að gagni fyrstu vikurnar og mánuðina eftir flutning.

Hins vegar hefur verið opnuð ný upplýsingasíða á heimasíðunni, Welcome to Vesturbyggð, þar sem safnað hefur verið saman fjölbreyttum upplýsingum fyrir nýja íbúa. Þar má meðal annars finna upplýsingar um fyrstu skrefin á Íslandi, húsnæði, heilbrigðisþjónustu, stéttarfélög og réttindi starfsmanna, skólakerfið, félagsþjónustu og íslenskukennslu. Hlekkur á síðuna er neðst í þessari frétt.

Sérstök áhersla er lögð á gagnvirkt rafrænt kort sem er aðgengilegt á síðunni. Kortið sýnir helstu þjónustu og mikilvæga staði í sveitarfélaginu á myndrænan og einfaldan hátt, sem getur auðveldað nýjum íbúum að rata og kynnast nærumhverfi sínu. Kortið er hægt að vista í síma.

Með verkefninu er stefnt að því að bæta upplýsingagjöf, styrkja aðgengi að þjónustu og auðvelda nýjum íbúum að taka þátt í samfélaginu allt frá fyrstu dögum.