Nemendur Tálknafjarðarskóla unnu keppnina Umhverfisfréttafólk
Nemendur á unglingastigi í Tálknafjarðarskóla hlutu verðlaun fyrir besta myndbandið í keppninni Umhverfisfréttafólk. Þátttaka í verkefninu er hluti af öflugu Grænfánastarfi skólans. Einnig sendu nemendur á miðstigi inn myndband um skiptimarkaði í Tálknafirði í keppnina Varðliðar umhverfisins.
Verðlaunamyndband nemendanna á unglingastigi fjallar um umhverfismanninn Kára og tóku þær við verðlaununum á uppskeruhátíð í Reykjavík mánudaginn 27. apríl. Árangurinn er virkilega ánægjulegur og tilefni til stolts, og bæði myndbönd sýna að nemendur taki virkan þátt í samfélagslegum málefnum á skapandi hátt.
Umhverfisfréttafólk er alþjóðlegt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 25 ára þar sem áhersla er lögð á að kynna sér umhverfismál og miðla þeim áfram með skapandi hætti. Verkefnið er starfrækt í 44 löndum og er rekið á Íslandi af Landvernd.
Þátttaka í keppnunum er hluti af Grænfánaverkefni skólans. Tálknafjarðarskóli hefur lengi unnið markvisst að umhverfismálum og sækir nú um sinn ellefta Grænfána á þessu vori.
Hlekkur á verðlaunamyndbandið er neðst í fréttinni.

