Niðurstöður rannsóknar á byggðabrag
Þátttakendur í nýrri rannsókn á byggðabrag í Vesturbyggð telja almennt gott að búa í sveitarfélaginu. Þeir lýsa sterkum tengslum við fólk í sínu nærumhverfi, stolti af náttúrunni og jákvæðu viðhorfi til nýrra íbúa. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að íbúar upplifi aðgengi að þjónustu og möguleika til áhrifa með ólíkum hætti eftir búsetu. Sveitarfélagið mun vinna áfram með niðurstöðurnar og nýta þær til að móta áherslur í starfi næstu ára.
Hvað er byggðabragur?
Byggðabragur snýst meðal annars um hvernig íbúar upplifa samfélagið sitt, þjónustuna sem þar er veitt, tengsl við annað fólk og möguleika sína til framtíðar. Markmiðið var að draga fram sérstöðu svæðisins, kanna hvað sameinar íbúa og greina hvernig megi styrkja samfélagið og ímynd nýsameinaðs sveitarfélags.
Rannsóknin er hluti af verkefninu Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlaut styrk úr byggðaáætlun til verkefnisins. Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst vann rannsóknina í samstarfi við Fjórðungssambandið, Vestfjarðastofu og Vesturbyggð. Verkefnisstjóri rannsóknarinnar var dr. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir og dr. Bjarki Þór Grönfeldt vann úr tölfræðigögnum.

Raddir íbúa í forgrunni
Rannsóknin fór að mestu fram í febrúar og mars 2026. Hún byggir á netkönnun, rýnihópum á öllum fjórum heimastjórnarsvæðum og vinnustofu ungmenna. Einnig var rýnt í upplýsingar og umfjöllun um sveitarfélagið á netinu og unnið með umræður á sameiginlegum starfsdegi alls starfsfólks sveitarfélagsins.
Alls bárust 169 svör við netkönnuninni, að hluta eða öllu leyti, frá öllum svæðum sveitarfélagsins. Hún var í boði bæði á íslensku og ensku en tiltölulega fáir svarendur voru með erlent ríkisfang. Hafa ber í huga að færri svör eru á bak við sumar spurningar. Þar af leiðandi er munur svara eftir svæðum og öðrum þáttum ekki alltaf marktækur. Góð þátttaka var í rýnihópum sem höfðu nokkuð breitt aldursbil, auk þess að vera sambland af íbúum sem eru fæddir á staðnum og þeim sem eru aðfluttir. Svör þeirra geta ekki gefið alhæfandi niðurstöður en eru engu að síður leiðarþráður og sýna góða heildarmynd af upplifun íbúa.
Góð þátttaka íbúa í rannsókninni skipti verulegu máli fyrir verkefnið og gerði rannsakendum kleift að draga fram bæði það sem íbúar kunna vel að meta við svæðið og þau atriði sem þeim finnst þurfa að bæta.

Ánægja með búsetu og sterk tengsl við samfélagið
Þátttakendur í netkönnuninni töldu almennt gott að búa í Vesturbyggð. Meðaleinkunn fyrir búsetu var 5,36 á kvarðanum 1–7, þar sem 1 merkti mjög slæmt og 7 mjög gott. Nálægð við náttúruna og sterk tengsl við aðra íbúa skipta þar miklu máli.
Margir þátttakendur taka virkan þátt í sjálfboðaliða- og/eða félagsstarfi. Í rýnihópum lýstu íbúar fjölbreyttu menningar- og félagslífi og því hvernig fólk styður hvert annað þegar á reynir. Stolt af náttúru og landslagi svæðisins mældist einnig sérstaklega sterkt. Þátttakendur fundu einnig fyrir stolti þegar öðrum íbúum vegnaði vel og þegar þeir sáu jákvæðar fréttir af viðburðum eða uppbyggingu í sveitarfélaginu. Þá komu fram jákvæð viðhorf til nýrra íbúa og nýrrar atvinnustarfsemi. Í skýrslunni er bent á að þessir þættir séu mikilvægur grunnur til að byggja upp áframhaldandi samfélagsþróun.

Þjónusta og tækifæri mæta ekki öllum þörfum
Þrátt fyrir almenna ánægju með búsetu voru niðurstöður um einstaka þjónustuþætti og málaflokka misjafnar. Mest óánægja var með vegakerfið sem fékk meðaleinkunnina 2,09 af 7. Íþrótta- og tómstundatækifæri sem og gæði grunn- og leikskóla voru meðal þeirra þátta sem fengu jákvæðara mat. Mat á farsímasambandi, skipulagsmálum og fjölbreytni atvinnulífs var hins vegar undir miðju kvarðans.
Einnig kom fram að þátttakendur upplifðu ekki alltaf að þeir gætu uppfyllt þarfir sínar í nærumhverfinu. Í skýrslunni er bent á að aðgengi að þjónustu hafi áhrif á samfélagskennd og möguleika fólks til að festa rætur.
Í rýnihópum voru bættar samgöngur taldar hafa skapað mikil tækifæri og aukið samgang, bæði milli kjarna innan sveitarfélagsins og við önnur sveitarfélög. Jafnframt komu fram áhyggjur af skerðingu almenningssamgangna milli fjarða og áhrifum hennar á þau sem reiða sig á slíka þjónustu.

Ólík upplifun eftir búsetu
Mat þátttakenda á þjónustu og tækifærum var mismunandi eftir búsetusvæðum. Þeir lögðu einnig ólíkt mat á þau áhrif sem þeirra byggðarlag hefur á ákvarðanir sveitarfélagsins.
Þátttakendur á Patreksfirði mátu nokkra þætti jákvæðar en þátttakendur annars staðar í sveitarfélaginu. Til dæmis voru þátttakendur í Arnarfirði og Tálknafirði síður ánægðir með tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Einnig mældist marktækur munur á upplifun þess hvort eigið byggðarlag hefði áhrif til jafns við önnur byggðarlög innan Vesturbyggðar. Í rýnihópum utan Patreksfjarðar komu fram sjónarmið um að ekki væri nægilegt jafnræði í þjónustu, ákvarðanatöku og vægi svæða.
Þátttakendur í könnuninni voru almennt jákvæðir gagnvart sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps árið 2024. Í rýnihópunum kom fram bjartsýni um að nýtt fyrirkomulag heimastjórna gæti styrkt tengsl íbúa við stjórnsýsluna og aukið möguleika þeirra til áhrifa. Heimastjórnarfyrirkomulagið væri þó enn að slíta barnsskónum en fróðlegt yrði að sjá hvernig þær nýtast íbúum til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Samheldni, traust og þátttaka
Samheldni mældist nokkuð sterk og niðurstöðurnar benda til þess að fólk í leiðtogahlutverkum njóti að jafnaði trausts. Í könnuninni komu þó einnig fram áhyggjur af slúðri, neikvæðu umtali og frændhygli eða klíkuskap.
Þátttakendur upplifðu góða samheldni en höfðu minni trú á því að samfélagið gæti tekist á við sameiginlegar áskoranir. Höfundar skýrslunnar benda á að íbúar, félagasamtök og sveitarfélagið geti byggt á samheldninni með því að vinna saman að smærri verkefnum. Þegar árangurinn verður sýnilegur getur það aukið trú fólks á því sem það getur áorkað saman.
Karlar sem svöruðu könnuninni voru að jafnaði síður ánægðir með búsetu en konur. Þeir upplifðu einnig síður að þeir tilheyrðu samfélaginu eða hefðu áhrif á það. Ástæður þessa eru óljósar og höfundar telja ástæðu til að fylgjast áfram með þessari þróun.

Ungmennin vilja að öllum líði vel
Vinir, félagsskapur, stuðningur og umhverfið voru meðal þess sem ungmennin á vinnustofunni kunnu að meta við búsetuna. Þegar þau röðuðu því sem þeim fannst mikilvægast fyrir samfélagið settu þau vellíðan, heilbrigð samskipti og að fólk upplifði sig sem hluta af heildinni í efstu sætin. Þau vildu líka að stjórnendur tækju virkan þátt í samfélaginu og hlustuðu á þarfir og óskir íbúa.
Ungmennin óskuðu eftir fjölbreyttari íþróttum, betri aðstöðu og fjölbreyttari atvinnutækifærum. Þau ræddu einnig áhrif slúðurs og klíkuskapar á samskipti í litlu samfélagi. Í skýrslunni er lögð áhersla á að ungt fólk fái tækifæri til að láta til sín taka og finni að sjónarmið þess hafi vægi.

Atvinnulíf, mannlíf og upplýsingagjöf
Í rýnihópunum lýstu þátttakendur því hvernig fjölgun starfa og aukin umsvif í tengslum við fiskeldi hefðu styrkt stoðir samfélaganna með margvíslegum hætti, meðal annars með aukinni þjónustu. Þeir kölluðu jafnframt eftir vandaðri umgjörð og meiri áhrifum heimafólks á þróun atvinnugreinarinnar. Þátttakendur sáu einnig tækifæri í fjölbreyttara atvinnulífi og ferðaþjónustu, meðal annars vegna bættra samgangna.
Margir þátttakendur vildu sjá meira af því fjölbreytta mannlífi sem þeir þekkja úr eigin nærumhverfi endurspeglast í umfjöllun um svæðið. Sumum fannst umfjöllun á landsvísu einhliða og fréttir af viðburðum og uppbyggingu fá lítið rými.
Íbúar lýstu einnig hversu erfitt getur verið að fylgjast með því sem er í boði þegar upplýsingar dreifast á margar vefsíður og samfélagsmiðlahópa. Í skýrslunni er bent á að skýrari upplýsingagjöf geti bæði auðveldað fólki að fylgjast með og gert félagslífið sýnilegra. Þar er einnig lögð áhersla á að upplýsingar nái til íbúa af erlendum uppruna og að þeim sé auðveldað að taka þátt í félagsstarfi. Þá er einnig líklegt að aukin upplýsingagjöf og fréttaflutningur af svæðinu auki jákvæða athygli og bæti ímynd.

Niðurstöðurnar verða nýttar áfram
Vesturbyggð vill þakka öllum sem svöruðu könnuninni, tóku þátt í rýnihópum og vinnustofum og deildu reynslu sinni. Þátttaka íbúa gaf sveitarfélaginu skýrari mynd af því hvað þeir vilja varðveita og efla í samfélaginu okkar og hvað megi bæta. Sveitarfélagið mun vinna áfram með niðurstöðurnar og nýta þær til að móta áherslur og forgangsraða verkefnum.
Skýrslan er í heild sinni í viðhengi með fréttinni.


