Norrænir gestir í heimsókn í ráðhúsi Vesturbyggðar
Hópur norrænna gesta heimsótti ráðhús Vesturbyggðar á Patreksfirði í tengslum við vinabæjarheimsókn sem Norræna félagið í Vesturbyggð skipulagði.
Skrifað: 24. ágúst 2026
Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri bauð hópinn velkominn og kynnti sveitarfélagið, byggðakjarnana, atvinnulífið, menninguna og náttúru svæðisins. Þá var einnig fjallað um helstu tækifæri og áskoranir sem fylgja því að veita þjónustu og byggja upp öflug samfélög í víðfeðmu og dreifbýlu sveitarfélagi.
Vesturbyggð þakkar gestunum kærlega fyrir komuna og Norræna félaginu í Vesturbyggð fyrir að skipuleggja heimsóknina.
