Nótan 2026
Laugardaginn 18. apríl verða svæðistónleikar Nótunnar 2026 haldnir í Félagsheimili Patreksfjarðar. Þetta eru svæðistónleikar fyrir Vestfirði og Vesturland og verður þetta í fyrsta sinn sem að Nótan fer fram á Vestfjörðum.
Nótan er uppskeruhátíð allra tónlistarskóla á Íslandi og fór fyrst fram vorið 2010. Svæðistónleikar Nótunnar fara nú fram um allt land 12. og 18. apríl. Tilgangur Nótunnar var að efla samstarf milli tónlistarskóla og um leið tónlistina í landinu.
Von er á um 100 manns í heimsókn til Patreksfjarðar frá sjö tónlistarskólum í tilefni af tónleikunum, nemendum, foreldrum, kennurum og stjórnendum. Gestirnir koma flestir til bæjarins á föstudegi til að æfa og njóta ferðarinnar. Nemendurnir gista í Patreksskóla ásamt foreldrum, en þeir koma frá Akranesi, Bolungarvík, Borgarfirði, Grundarfirði, Ísafirði, Snæfellsbæ og Stykkishólmi.
Það má reikna með fjölmenni á tónleikunum í FHP sem hefjast kl. 14:00. Aðgangur er ókeypis og allir sem vilja velkomnir að koma og hlusta á meðan húsrúm leyfir. Gert ráð fyrir að um 40 nemendur úr Tónlistarskóla Vesturbyggðar taki þátt auk gestkomandi nemenda. Í heild munu um 100 nemendur koma fram á tónleikunum og flytja fjölbreytta tónlist, stórir hópar niður í einleiksatriði, klassík, popp og rokk.
Efnisskráin hefst á Nótutón í flutningi nemenda frá Stykkishólmi, forspil sem sérstaklega var samið til opnunar Nótutónleika. Þá kemur sameiginlegt atriði allra skólanna, stórhljómsveit spilar saman Rock Around the Clock. Síðan verða flutt 2-4 lög frá hverjum skóla sem valin hafa verið til flutnings af þessu tilefni. Framlag Vesturbyggðar eru fjögur lög: Sigfríður Sól Guðmundsdóttir leikur verk eftir Philip Glass á píanó, Hildur Ása Gísladóttir mun syngja einsöng með hljómsveit í Will You Still Love Me Tomorrow, Svanur Einarsson syngur og leikur lag Laufeyjar, From the Start, á gítar með Einari Ostaszewski ásamt rytmasveit og hópur frá Tálknafirði ásamt nemendum frá Patreksfirði og Barðaströnd flytja lagið Söngur Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson.
Gerður B. Sveinsdóttir bæjarstjóri mun flytja ávarp og Páll Vilhjálmsson verður kynnir. Að tónleikum loknum verður þátttakendum boðið upp á veitingar og hefur Kvenfélagið Sif styrkt Tónlistarskólann af því tilefni.