Nú er hægt að senda rafræna reikninga á heimasíðunni
Sveitarfélagið tekur eingöngu við reikningum sem berast í gegnum rafræna skeytamiðlun. Nýr möguleiki á heimasíðu sveitarfélagsins gerir öllum kleift að senda rafræna reikninga án kostnaðar.
Skrifað: 1. júlí 2026
Sveitarfélagið tekur nú eingöngu við rafrænum reikningum sem berast í gegnum rafræna skeytamiðlun. Ekki er lengur tekið við reikningum sem berast í bréfpósti eða sem PDF-skjöl í tölvupósti.
Til að auðvelda þjónustuaðilum skil á reikningum hefur verið bætt við hlekk á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem hægt er að senda rafræna reikninga í gegnum rafræna skeytamiðlun. Þessi leið er öllum opin og er án kostnaðar fyrir sendanda reiknings.
Hlekkur á rafræna skeytamiðlun er að finna á forsíðu heimasíðu sveitarfélagsins undir „Styttur þér leið“.
Með þessari breytingu er reikningamóttaka einfölduð og afgreiðsla reikninga verður skilvirkari. Allir sem senda reikninga til sveitarfélagsins eru því beðnir um að nota rafræna skeytamiðlun við innsendingu reikninga framvegis.