Nýir upplýsingavefir um Bíldudal
Nýjar heimasíður hafa verið opnaðar fyrir Bíldudal og Golfklúbb Bíldudals. Á bildudalur.is má fylgjast með því sem er að gerast í þorpinu og finna upplýsingar um þjónustu og mannlíf en á golf.bildudalur.is eru upplýsingar um golfvöllinn og fréttir frá golfklúbbnum.
Heimasíðan bildudalur.is er sjálfstætt framtak og er ætluð bæði íbúum og ferðamönnum. Þar má finna fréttir og viðburði úr þorpinu, tilkynningatöflu þar sem íbúar geta sjálfir sent inn efni, yfirlit yfir fyrirtæki og þjónustu ásamt upplýsingum um sögu Bíldudals.
Á heimasíðunni er einnig sérstök síða um bæjarhátíðina Bíldudals grænar baunir, sem fer næst fram 1.–4. júlí 2027.
Einnig hefur nýlega verið opnuð heimasíða Golfklúbbs Bíldudals þar sem má nálgast upplýsingar um golfvöllinn á Bíldudal og fylgjast með fréttum frá golfklúbbnum.
Hlekkir á heimasíðurnar eru neðst í fréttinni.