Nýr ábendingarhnappur
Nýr ábendingarhnappur hefur verið tekinn í gagnið á heimasíðunni. Þar er hægt að senda fyrirspurnir og ábendingar á sveitarfélagið með aðgengilegum og fljótlegum hætti, annað hvort nafnlaust eða undir nafni.
Þá er einnig hægt að senda myndir og upplýsingar um staðsetningu, eftir eðli ábendingarinnar.
Hnappurinn er ofarlega til hægri á forsíðu heimasíðunnar, undir Fyrirspurnir og ábendingar.