Hoppa yfir valmynd

Nýr leik­skóla­stjóri

Ingi­björg Lilja Kristjáns­dóttir hefur verið ráðinn nýr leik­skóla­stjóri Vest­ur­byggðar og mun hún hefja störf í ágúst.


Skrifað: 15. júní 2026

Ingibjörg Lilja er með M.T. og B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands, auk viðbótardiplómu í stjórnun og forystu í lærdómssamfélagi frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur starfað sem umsjónarkennari í Patreksskóla frá 2025 og þar áður sem deildar- og verkefnastjóri hjá Heilsuleikskólanum Skógarás. Þá hefur hún einnig gegnt trúnaðar- og stjórnarstöðum innan Félags leikskólakennara. Ingibjörg Lilja hefur reynslu af teymisvinnu og -stjórnun.

Við hlökkum til að fá hana til starfa.

 


Breytingar á stjórnskipulagi leik- og grunnskóla sveitarfélagsins

Þann 20. mars síðastliðinn samþykkti fjölskylduráð breytingar á stjórnskipulagi í leik- og grunnskólum Vesturbyggðar. Nýr skólastjóri grunnskóla Vesturbyggðar fer með faglega forystu og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Við hverja starfsstöð grunnskóla verður deildarstjóri sem ber ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri skólastarfs á viðkomandi stað. Leikskólastjóri Vesturbyggðar verður með starfsstöð á Arakletti og ber ábyrgð á daglegum rekstri þar og sinnir auk þess faglegum stuðningi og samræmingu gagnvart öðrum leikskóladeildum sveitarfélagsins.

Skipulagsbreytingarnar fela ekki í sér sameiningu skóla sveitarfélagsins, heldur breytingu á stjórnun skólastarfs með það að markmiði að styrkja faglega forystu, bæta samræmingu og efla samstarf milli starfsstöðva.

Með þessari skipan er gert ráð fyrir að sérstaða hverrar starfsstöðvar, tengsl við nærsamfélag og staðbundin ábyrgð haldist, um leið og stoðir skólastarfs í sveitarfélaginu eru efldar. Gert er ráð fyrir að innleiðingu skipulagsins verði fylgt markvisst eftir og hún rýnd með reglubundnum hætti.