Hoppa yfir valmynd

Nýr samstarfs­samn­ingur um íþrótt­astarf

Nýr samstarfs­samn­ingur hefur verið undir­rit­aður milli sveit­ar­fé­lagsins og Héraðs­sam­bands Hrafna-Flóka með það að mark­miði að efla íþrótta- og tómstund­astarf í sveit­ar­fé­laginu.


Skrifað: 11. mars 2026

Samningurinn felur meðal annars í sér að efla og viðhalda öflugu íþrótta- og tómstundastarfi og tryggja börnum, ungmennum og almenningi jafnan aðgang að skipulögðu starfi óháð búsetu og aðstæðum. Þá er lögð áhersla á að stuðla að heilbrigðum lífsháttum, styrkja félagslega þátttöku og skapa aðstæður sem hvetja íbúa til hreyfingar og þátttöku í íþróttum.

Í samningnum er einnig kveðið á um aukið samráð milli sveitarfélagsins og Héraðssambands Hrafna-Flóka. Reglulegir samráðsfundir verða haldnir og fulltrúar íþrótta- og tómstundamála taka þátt í umræðu og þróun verkefna sem tengjast íþróttum og lýðheilsu.

Samningurinn felur jafnframt í sér stuðning við starf aðildarfélaga Héraðssambands Hrafna-Flóka og samræmingu í málefnum íþróttafélaga. Markmiðið er að styrkja grunn íþróttastarfs í sveitarfélaginu og tryggja áframhaldandi þróun þess til framtíðar.