Nýr skólastjóri grunnskóla
Birna Friðbjört Hannesdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra grunnskóla Vesturbyggðar. Hún mun leiða faglega þróun og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk skólanna. Birna hefur þegar hafið störf að hluta en mun byrja að fullu í ágúst.
Birna er með M.Ed. gráðu í kennslufræði frá Háskóla Íslands, M.L.M. í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og B.Sc. í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands auk viðbótarnáms í stjórnun menntastofnana.
Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og þróunarstarfi í skóla- og íþróttastarfi á Vestfjörðum. Hún var síðast svæðisfulltrúi ÍSÍ og UMFÍ á Vestfjörðum og starfaði áður sem skólastjóri Tálknafjarðarskóla þar sem hún leiddi daglegan rekstur, mannauðsmál og faglega þróun með áherslu á jákvæða skólamenningu og öfluga teymisvinnu. Þá hefur hún verið leiðandi í íþrótta- og samfélagsstarfi í sveitarfélaginu síðastliðin ár, meðal annars sem formaður Héraðssambands Hrafna-Flóka og Íþróttafélagsins Harðar. Þá var hún einnig umsjónarkennari við Patreksskóla um árabil.
Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.

Breytingar á stjórnskipulagi leik- og grunnskóla sveitarfélagsins
Þann 20. mars síðastliðinn samþykkti fjölskylduráð breytingar á stjórnskipulagi í leik- og grunnskólum Vesturbyggðar. Nýr skólastjóri grunnskóla Vesturbyggðar fer með faglega forystu og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Við hverja starfsstöð grunnskóla verður deildarstjóri sem ber ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri skólastarfs á viðkomandi stað. Leikskólastjóri Vesturbyggðar verður með starfsstöð á Arakletti og ber ábyrgð á daglegum rekstri þar og sinnir auk þess faglegum stuðningi og samræmingu gagnvart öðrum leikskóladeildum sveitarfélagsins.
Skipulagsbreytingarnar fela ekki í sér sameiningu skóla sveitarfélagsins, heldur breytingu á stjórnun skólastarfs með það að markmiði að styrkja faglega forystu, bæta samræmingu og efla samstarf milli starfsstöðva.
Með þessari skipan er gert ráð fyrir að sérstaða hverrar starfsstöðvar, tengsl við nærsamfélag og staðbundin ábyrgð haldist, um leið og stoðir skólastarfs í sveitarfélaginu eru efldar. Gert er ráð fyrir að innleiðingu skipulagsins verði fylgt markvisst eftir og hún rýnd með reglubundnum hætti.