Nýr tómstundafulltrúi
Maggý Hjördís Keransdóttir hefur verið ráðinn nýr tómstundafulltrúi. Hún hefur þegar hafið störf að hluta en byrjar að fullu í ágústmánuði.
Maggý er menntaður uppeldis- og menntunarfræðingur og hefur verið umsjónarkennari í Patreksskóla síðustu ár.
Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.
