Nýtt byggðarmerki tilnefnt til FÍT verðlaunanna
Byggðarmerki Vesturbyggðar hefur hlotið tilnefningu til FÍT verðlaunanna árið 2026 í flokki firmamerkja. Verðlaunin veitir Félag íslenskra teiknara árlega til verka sem þykja skara fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum. Merkið hannaði hönnunarstofan Kolofon.
Byggðarmerkið var samþykkt af bæjarstjórn þann 20. ágúst 2025 að lokinni opinni og nafnlausri hönnunarsamkeppni sem efnt var til í kjölfar sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps vorið 2024. Höfundar merkisins eru Hörður Lárusson, Davíð Arnar Baldursson og Saga Guðnadóttir hjá hönnunarstofunni Kolofon.
Verðlaunaafhending fer fram í Grósku föstudaginn 27. febrúar kl. 19:00.
Tilnefningin er ánægjuleg viðurkenning á merkinu og er hönnuðum óskað innilega til hamingju með tilnefninguna.
