Hoppa yfir valmynd

Nýtt byggð­ar­merki vann FÍT verð­launin

Nýtt byggð­ar­merki sveit­ar­fé­lagsins hlaut gull­verð­laun í flokki firma­merkja á FÍT verð­launa­af­hend­ing­unni 2026. Verð­launin eru mikill heiður og stað­festing á gæðum merk­isins og þeirri hugsun sem að baki því liggur. Hönn­uðum merk­isins er óskað inni­lega til hamingju með þennan glæsi­lega árangur.


Skrifað: 28. febrúar 2026

Merkið hönnuðu Hörður Lárusson, Davíð Arnar Baldursson og Saga Guðnadóttir hjá hönnunarstofunni Kolofon.

Rökstuðningur dómnefndar

Einstaklega vel leyst, bæði í svarthvítu og lit og heldur styrk sínum í ólíkum birtingarmyndum. Myndmálið er skýrt og talar sannfærandi inn í sögulegt samhengi. Framúrskarandi lausn, hönnuð inn í þröngan ramma en útfærslan heppnast afar vel.

 


Merkið hönnuðu Hörður Lárusson, Davíð Arnar Baldursson og Saga Guðnadóttir hjá hönnunarstofunni Kolofon.

Lýsing höfunda

Byggð­ar­merkið er leikur að sjón­rænu formi, sem bæði minnir á öldur og er um leið teikning af firði á milli fjalla­hlíða.

Úr forminu má einnig lesa bókstafinn V, sem tilvísun í nafn sveit­ar­fé­lagsins.

Merkið kinkar enn fremur kolli til þess merkis sem er talið vera elsta skjald­ar­merki Íslands, frá 1258. Merkið var þverröndótt með 6 bláum röndum á silf­ur­skildi.


Hönnunarsamkeppni

Í kjölfar sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps var ákveðið að efna til opinnar hönnunarsamkeppni um nýtt byggðarmerki. Keppnin fór fram í nafnleynd og alls bárust 56 tillögur. Dómnefnd hönnunarsamkeppninnar, skipuð af Birtu Ósmann Þórhallsdóttur, Greipi Gíslasyni og Guðmundi Oddi Magnússyni, samþykkti samhljóma að leggja til við bæjarstjórn að tillaga nr. 67278 yrði gerð að nýju byggðarmerki sveitarfélagsins. Tillagan var samþykkt á 15. fundi bæjarstjórnar þann 20. ágúst 2025.

Greipur Gíslason, Birta Ósmann Þórhallsdóttir og Guðmundur Oddur Magnússon.
Dómnefnd
Greipur Gíslason, Birta Ósmann Þórhallsdóttir og Guðmundur Oddur Magnússon.

Úr rökstuðningi dómnefndar

[…]

Horft er út fjörð þar sem sjón­deild­ar­hring­urinn víkkar. Framundan er óend­an­leikinn. Áhorf­andinn stendur í skut skips og horfir á kjölfar þess sem myndast á hafflet­inum – hann er á heim­leið.

Táknmál merk­isins lítur ekki til þriggja eða fleiri samfé­lags­hluta heldur myndar heild og mögu­leik­arnir eru óend­an­legir.

[…]

Merkið er skil­merki­legt, skýrt og einfalt en býður upp á mismun­andi túlk­anir. Sífleiri myndir birtast því lengur sem horft er á það. Merkið samræmist öllum megin­kröfum um byggð­ar­merki að formi og lögun.