Hoppa yfir valmynd

Opið fyrir umsóknir í Tónlist­ar­skólann

Opið er fyrir nýjar umsóknir í Tónlist­ar­skóla Vest­ur­byggðar fyrir starfs­árið 2025-2026. Umsókn­ar­frestur er til og með 22. ágúst.


Skrifað: 18. ágúst 2025

Öllum nýjum umsóknum verður svarað eftir það og hleypt inn eftir því sem ráðrúm er til. Einstaka sinnum hafa myndast stuttir biðlistar og þá hafa þeir forgang sem fyrstir sóttu um. Vel er tekið á móti öllum umsóknum, sama hver aldurinn er, en við skráum þó að jafnaði ekki börn yngri en 6 ára í skólann. Hægt er að nálgast upplýsingar um gjaldskrá o.fl. á vef Vesturbyggðar. Umsóknareyðublað má nálgast á hlekk neðst í fréttinni.

Kennt er á blokkflautu, píanó, gítar, ukulele, bassa, fiðlu, flautu, klarinett, saxófón, fagott, trompet, básúnu, slagverk og trommusett,  auk þess sem söngnám er í boði. Leitast verður við að bjóða upp á allt þetta á öllum starfsstöðvum, á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði.

 

Tónlistarskóli skólastjóri

KMJ

tonlistarskoli@vesturbyggd.is/+354 450 2340