Opið hús í varðskipinu Þór
Landhelgisgæslan heldur áfram að heimsækja sveitarfélög víðsvegar um landið í tilefni 100 ára afmælis stofnunarinnar.
Laugardaginn 30. maí ætlar áhöfnin á varðskipinu Þór að bjóða áhugasömum að skoða skipið á Patreksfirði og kynnast verkefnum Landhelgisgæslunnar milli kl. 13-15. Eiríkur Bragason, skipherra, og áhöfn hans taka vel á gestum.
