Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Orkusetur Orkustofnunar auglýsir sólarsellustyrki
Sótt er um styrk í gegnum þjónustugátt Orkustofnunar. Opið er fyrir umsóknir frá 27. júní til 1. ágúst.
Í forgangi við úthlutun styrkja eru:
- Notendur utan samveitna
- Notendur á dreifbýlistaxta
- Notendur á rafhituðu svæði
Um samkeppnissjóð er að ræða, við val á umsóknum er horft til verkefna þar sem notkun og framleiðslugeta fara hvað best saman. Styrkurinn nemur aldrei meira en 50% af efniskostnaði.