Hoppa yfir valmynd

Orku­þing Vest­fjarða

Orku­þing Vest­fjarða verður haldið föstu­daginn 6. mars á Ísafirði þar sem helstu hagað­ilar í orku­málum svæð­isins koma saman til að ræða stöðu, fram­tíð­arsýn og tæki­færi í orku­upp­bygg­ingu á Vest­fjörðum.


Skrifað: 24. febrúar 2026

Á þinginu verður farið yfir lykilverkefni í orkumálum á svæðinu, framvindu þeirra, tímalínur og þær áskoranir sem standa frammi fyrir samfélögum og atvinnulífi Vestfjarða á komandi árum. Jafnframt verður fjallað um þau tækifæri sem felast í aukinni orkuöflun, bættu orkuöryggi og orkuskiptum í landshlutanum.

Þingið verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, Aðalstræti 7. Það hefst kl. 11:30 og lýkur kl. 14:15.

Dagskrá:

  • 11:30 — Fundarsetning: Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • 11:45 — Vesturverk: Hvalárvirkjun
  • 12:00 — Orkubú Vestfjarða: Jarðhiti
  • 12:15 — EM-Orka: Vindorka
  • 12:30 — Hlé, hádegisverður
  • 13:00 — Arctic Hydro: Austurgilsvirkjun
  • 13:15 — Orkubú Vestfjarða: Vatnsafl
  • 13:30 — Landsnet: Tenging við flutningskerfið
  • 13:45 — Pallborðsumræður