Hoppa yfir valmynd

Óskað eftir þátt­töku í rýni­hópa­við­tölum

Óskað er þátt­töku nokk­urra íbúa í rýni­hópa­við­tölum sem fara fram á vegum verk­efn­isins Byggða­bragur í Vest­ur­byggð, ímynd nýs sveit­ar­fé­lags sem Rann­sókn­ar­setur í byggða- og sveit­ar­stjórn­ar­málum við Háskólann á Bifröst fram­kvæmir nú á staðnum. Afar mikil­vægt er að fá fram sjón­armið íbúa og hvetur sveit­ar­fé­lagið fólk til þátt­töku.


Skrifað: 20. febrúar 2026

Viðtölin fara fram sem hópspjall í rúma klukkustund, um samfélagsleg málefni í Vesturbyggð. Boðið verður upp á léttar veitingar. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir frá rannsóknarsetrinu tekur viðtölin, vinsamlegast tilkynnið þátttöku til hennar gretaj@bifrost.is.

Viðtölin fara fram sem hér segir:

  • Bíldudalur: Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 16:30 í Baldurshaga
  • Patreksfjörður: Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 16:30 í fundarsal félagsheimilis Patreksfjarðar
  • Tálknafjörður: Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 16:30 í Vindheimum
  • Fyrrum Barðastrandar- og Rauðasandshreppur: Laugardaginn 28. febrúar kl. 13:00 í félagsheimilinu Birkimel