Óvissa með ferðir Baldurs
Ferjuleiðir tilkynna að vegna óhagstæðrar veðurspár á morgun, fimmtudaginn 19. mars, og á föstudaginn 20. mars er staðan með siglingar Baldurs yfir Breiðafjörð nokkuð óviss.
Öryggi farþega og áhafnar er ávallt í forgangi og því gæti þurft að fella niður eða breyta áætlun með skömmum fyrirvara.
Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með á Facebooksíðu Ferjuleiða þar sem birtar verða uppfærðar upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.