Hoppa yfir valmynd

Óvissu­stig vegna krapa­flóða­hættu

Veður­stofa Íslands hefur lýst yfir óvissu­stigi vegna krapa­flóða­hættu á Sunn­an­verðum Vest­fjörðum.


Skrifað: 18. mars 2026

Ekki eru þó taldar miklar líkur á stórum krapaflóðum en þó eru íbúar á Patreksfirði sem búa í húsum sem standa efst í bröttum hlíðum og við árfarvegi hvattir til að dvelja ekki í herbergjum með glugga sem snúa upp í hlíðar á jarðhæð eða í kjöllurum meðan rigningin gengur yfir. Fólk er hvatt til að sýna aðgæslu nærri vatnsfarvegum þar sem krapaspýjur geta borist niður.
Aukin varúð gildir fyrir eftirfarandi hús á Patreksfirði:
  • Brunnar 1 og 2
  • Aðalstræti 77A og 75 (næst farveginum), 76 og 78
  • Hlíðarvegur 2
  • Hjallar 2
Af öryggisástæðum hefur verið ákveðið að loka veginum um Raknadalshlíð frá kl. 23:00 í kvöld, miðvikudag.