Ráðgjafi á fjölskyldusviði
Vesturbyggð auglýsir eftir ráðgjafa á fjölskyldusviði. Sveitarfélagið Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur reka sameiginlega félagsþjónustu og nær því starfssvæðið yfir bæði sveitarfélögin.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er ábyrgur og getur unnið sjálfstætt í málaflokkum sem heyra undir fjölskyldusvið Vesturbyggðar.
Meginverkefni
- Unnið í þeim verkefnum sem falla undir félagsþjónustu og barnavernd
- Veitir ráðgefandi leiðbeiningar til stofnana sveitarfélagana sem og við samstarfsaðila í velferðarmálum vegna málefna barna og ungmenna.
- Unnið eftir lögum varðandi þá málaflokka sem falla undir fjölskyldusvið Vesturbyggðar s.s. málefni fatlaðs fólks, málefni barna og ungmenna, félagsleg ráðgjöf, jafnréttismál, innflytjendamál og málefni aldraðra
- Þátttaka í teymisvinnu og þverfaglegri samvinnu við aðrar starfseiningar innan fjölskyldusviðsins og innan sveitarfélagsins
- Móttaka og mat tilkynninga um óviðunandi aðbúnað barna skv. Barnaverndarlögum nr.80/2002
Hæfniskröfur
- Háskólapróf til starfsréttinda í félagsráðgjöf æskileg eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærileg starfi er kostur
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
- Enskukunnátta æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögum
- Rík og góð samskiptahæfni
- Jákvæðni og aðlögunarhæfni
- Hreint saka vottorð í samræmi við lög og reglur
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2022
Laun eru samkvæmt samningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldsviðs í síma 450 2300 eða arnheidur@vesturbyggd.is
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt Umsókn – Ráðgjafi á fjölskyldusviði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið. Sveitarfélagið aðstoðar við leit að húsnæði.