Stjórnendastöður í leik- og grunnskólum Vesturbyggðar
Vesturbyggð hefur lokið ráðningarferli vegna breytinga á stjórnskipulagi leik- og grunnskóla sveitarfélagsins sem unnið hefur verið að.
Markmið breytinganna er að styrkja faglega forystu í skólastarfi sveitarfélagsins, efla samstarf milli skóla og styðja betur við litlar rekstrareiningar í dreifðu sveitarfélagi. Með nýju skipulagi verður lögð aukin áhersla á sameiginlega faglega forystu, öflugt stjórnendateymi og aukið samstarf milli skóla sveitarfélagsins.
Skrifað: 4. júní 2026
Birna Friðbjört Hannesdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra grunnskóla Vesturbyggðar. Birna mun leiða faglega þróun og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk skólanna.
Ingibjörg Lilja Kristjánsdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra Vesturbyggðar. Hún mun bera ábyrgð á daglegum rekstri leikskólans Arakletts og jafnframt hafa hlutverk í faglegri samræmingu leikskólastarfs í sveitarfélaginu.
Lilja Rut Rúnarsdóttir mun gegna stöðu aðstoðarskólastjóra og verða staðgengill skólastjóra grunnskóla Vesturbyggðar.
Jónína Sigurðardóttir og Helga Birna Berthelsen munu gegna stöðum deildarstjóra og leiða daglegt starf skóla í sínum byggðarlögum í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur sveitarfélagsins.
Lilja Björk Hauksdóttir verður fulltrúi stoðþjónustu í teyminu.
Vesturbyggð bindur miklar vonir við nýtt stjórnskipulag og það öfluga stjórnendateymi sem nú hefur verið skipað. Sveitarfélagið óskar nýjum stjórnendum innilega til hamingju með störfin og hlakkar til áframhaldandi samstarfs um þróun og uppbyggingu skólastarfs í sveitarfélaginu.
