Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Rafvirki – Orkubú Vestfjarða
Starfsmaðurinn verður hluti af vinnuflokki veitusviðs Orkubús Vestfjarða með starfstöð á Patreksfirði.
Starfsumhverfi er sunnanverðir Vestfirðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og nýframkvæmdir á veitusviði.
- Viðhald á háspennu og lágspennubúnaði.
- Reglubundið eftirlit í veitukerfi.
- Bakvaktir.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2026
Frekari upplýsingar um starfið veitir svæðisstjóri obk@ov.is