Rekstur framhaldsdeildar á Patreksfirði tryggður
Það er ánægjulegt að greina frá því að rekstur framhaldsdeildar á Patreksfirði hefur verið tryggður frá og með hausti 2026 í samstarfi Vesturbyggðar og Menntaskólans á Ísafirði.
Skrifað: 15. júní 2026
Námið verður skipulagt sem blanda af staðnámi og fjarnámi, þar sem nemendur fá aðstöðu og stuðning á Patreksfirði samhliða kennslu og þjónustu frá Menntaskólanum á Ísafirði. Markmiðið er að auka möguleika ungmenna á sunnanverðum Vestfjörðum til að stunda framhaldsskólanám í heimabyggð með því að skapa öflugt námsumhverfi með góðu utanumhaldi og tengingu við skólasamfélagið í MÍ.
Verkefnið er enn í mótun og nánari útfærsla á fyrirkomulagi þess verður kynnt síðar. Ljóst er þó að um mikilvægt skref er að ræða í uppbyggingu framhaldsnáms á svæðinu.
Umsóknarfrestur um nám er til 16. ágúst. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér námið eða óska eftir frekari upplýsingum eru hvattir til að hafa samband við skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, heidrun@misa.is eða í síma 450 4400