Hoppa yfir valmynd

Safn um Gísla opnað á Uppsölum

Safn Gísla á Uppsölum var form­lega opnað 7. ágúst að viðstöddum fjölda gesta. Opnun­ar­dag­skráin fór fram utan­dyra við Uppsali í Selárdal í Arnar­firði.


Skrifað: 26. ágúst 2026

Krummi Björgvinsson tók nokkur lög, Andri Söbbuson lék á harmonikku og Þröstur Leó Gunnarsson leikari las ljóð og hugleiðingar Gísla. Þorbjörn Pétursson, fyrrverandi bóndi á Ósi í Arnarfirði, og Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri klipptu síðan á borðann og opnuðu safnið formlega.

Félag um Safn Gísla hefur annast undirbúning og uppsetningu safnsins en félagið skipa Kári G. Schram, Íris Huld Einarsdóttir og Ólafur J. Engilbertsson. Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á Uppsölum og munum Gísla safnað saman. Híbýli hans hafa verið endurgerð og þar má meðal annars sjá persónulega muni, húsgögn, ljósmyndir og annað efni sem tengist lífi hans og verkum.

Afraksturinn er glæsilegur og verkefnið góð viðbót við menningarstarf og áfangastaðinn Selárdal. Fjölmargir hafa lagt verkefninu lið, bæði með vinnuframlagi og fjárhagslegum stuðningi. Hér að neðan má sjá myndir frá opnuninni, smellt er á örina hægra megin til að fletta.