Samningur við björgunarsveitina Tálkna
Samningur hefur verið gerður við björgunarsveitina Tálkna um stuðning við starf sveitarinnar. Markmiðið er að efla samstarf í almannavörnum og tryggja áfram öflugt öryggis- og björgunarstarf í sveitarfélaginu.
Samkvæmt samningnum leggur sveitarfélagið fram árlegt framlag til starfsemi björgunarsveitarinnar. Framlaginu er ætlað að styðja við mikilvægt starf björgunarsveitarinnar þar sem sjálfboðaliðar sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði öryggis- og björgunarmála. Einnig er lögð áhersla á að sem flestir íbúar hafi tækifæri til þátttöku í starfi sveitarinnar og að þátttaka í starfsemi hennar sé aðgengileg íbúum.
Samningurinn var undirritaður af Trausta Jóni Þóri Gíslasyni, formanni björgunarsveitarinnar Tálkna, og Gerði Björk Sveinsdóttur, bæjarstjóra.
