Hoppa yfir valmynd

Samstarfs­samn­ingur við Tálkna­fjör

Vest­ur­byggð og hátíð­ar­fé­lagið Tálkna­fjör hafa undir­ritað samstarfs­samning um bæjar­há­tíðina Tálkna­fjör sem haldin er á Tálkna­firði á síðustu helgi júlí­mánuðar annað hvert ár. Samn­ing­urinn kveður á um stuðning við hátíðina og aðkomu sveit­ar­fé­lagsins að ýmsum þáttum hennar.


Skrifað: 22. júní 2026

Samningurinn felur meðal annars í sér fjárhagslegan stuðning vegna aðkeyptra skemmtikrafta og leigu á færanlegum salernum á hátíðarsvæðinu. Þá munu handhafar hátíðararmbanda frá ókeypis aðgang í sund og gistingu á tjaldsvæðinu á Tálknafirði yfir hátíðarhelgina. Einnig er kveðið á um að heimilt sé að færa dagskrá hátíðarinnar inn í félagsheimilið á Tálknafirði komi upp alvarlegt óveður. Sú ráðstöfun er þó háð því að húsnæðið hafi ekki þegar verið leigt út vegna annarra viðburða.

Tálknafjör fer fram dagana 24.–26. júlí 2026 og eru áhugasöm hvött til að fylgjast með tilkynningum á Facebooksíðu hátíðarinnar.

Samninginn undirrituðu Jón Ólafur Ásgeirsson, fyrir hönd Tálknafjörs, og Valgerður María Þorsteinsdóttir, fyrir hönd Vesturbyggðar.


Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335