Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur af erlendum uppruna
Dagana 5.-6. október verður sjálfsvarnarnámskeið í matsal Patreksskóla á Patreksfirði. Námskeiðið er á vegum Slagtogs og er ætlað konum af erlendum uppruna.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við W.O.M.E.N á Íslandi, sem mun kynna samtök sín síðdegis á föstudeginum, 4. október, á Bókasafni Patreksfjarðar (Aðalstræti 53A).
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér
Hvað er Slagtog?
Slagtog eru femínísk félagasamtök sem leggja áherslu á að kenna konum og hinsegin fólki femíníska sjálfsvörn
Hvað er W.O.M.E.N.?
Samtök sem voru stofnuð 24. október 2003 með það að markmiði að sameina, tjá og taka á málum og hagsmunum kvenna af erlendum uppruna sem búa á Íslandi til að skapa þeim jafnræði, bæði sem konum og sem erlendum íbúum, á öllum sviðum samfélagsins.
.
