Hoppa yfir valmynd

Sjúkra­trygg­ingar — ferða­kostn­aður innan­lands

Breyting verður á umsóknum vegna ferða­kostn­aðar innan­lands frá 1. júlí 2024, vegna breyt­ingar á reglu­gerð nr. 1140/2019.


Skrifað: 3. júlí 2024

Lykilbreytingar eru þessar og gilda um ferðir sem eru farnar 1. júlí 2024 og síðar:
  1. Grunnréttur sjúkratryggðra til greiðsluþátttöku í ferðakostnaði verða fjórar ferðir, í ferðum umfram 20 km á hverju almanaksári. Rétturinn hefur verið 3 ferðir á ári frá síðustu áramótum, en hafði þar áður lengi verið tvær ferðir á hverjum 12 mánuðum. Áfram er skilyrði að um sé að ræða nauðsynlega sjúkdómsmeðferð sem ekki er hægt að fá í heimabyggð.
  2. Ekki þarf lengur að skila læknisvottorði vegna grunnréttarins sem nú verður fjórar ferðir á almanaksári. Einstaklingur getur snúið sér til umboðs Sjúkratrygginga hjá sýslumönnum um landið og fengið ferðakostnað greiddan á grundvelli ferðagagna á borð við flugmiða eða greiðslukvittunar fyrir eldsneyti. Ef rafrænn reikningur fyrir komu í heilbrigðisþjónustu liggur fyrir hjá Sjúkratryggingum þarf engum frekari gögnum að skila. Liggi slíkur reikningur ekki fyrir þarf að sýna fram á greiðslu fyrir komu eða aðra staðfestingu á komu. Gögnum má skila með rafrænum hætti.
  3. Læknar og ljósmæður þurfa áfram að sækja um ferðakostnað vegna ítrekaðra ferða í tengslum við alvarlega sjúkdóma. Sótt er um slíkan ferðakostnað á eyðublaðinu Skýrsla vegna ferðakostnaðar innanlands, sem aðgengilegt er á vefsíðu sjúkratrygginga undir Eyðublöð.
Fyrirspurnir má senda á ferdakostnadur@sjukra.is.