Skipulagsauglýsing — Miklidalsvegur 2a
Miklidalsvegur 2a, óveruleg breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2019-2035.
Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 3. desember 2025 að gera óverulega breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2019-2035 skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að breyta landnotkun Mikladalsvegar 2A úr íbúðasvæði yfir í athafnasvæði til samræmis við þá landnotkun sem búin er að vera til margra ára.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til skrifstofu Vesturbyggðar í Ráðhúsi eða sent fyrirspurn á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is.