Hoppa yfir valmynd

Skipu­lagsaug­lýsing – Bjark­ar­gata 9

Á 18. fundi heima­stjórnar Patreks­fjarðar þann 8. apríl 2026 var samþykkt að grennd­arkynna breyt­ingu á deili­skipu­lagi íbúða­byggðar og ofan­flóð­varna Urðir-Mýrar.


Skrifað: 13. apríl 2026

Svæðið sem óskað er eftir skipulagsbreytingu á er í dag skilgreint sem opið svæði samkvæmt deiliskipulagi Ofanflóðagarða ofan Urða og Mýra á Patreksfirði og byggðar neðan þeirra og sem miðsvæði í aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Óskað er eftir að svæðið verði skilgreint sem íbúðalóð í deiliskipulagi svæðisins. Einnig eru gerðar lagfæringar á stærðum og afmörkun aðliggjandi lóða til samræmis við núverandi ástand.

Frestur til að senda athugasemdir er til  8. maí 2026 undir málsnúmerinu 414/2026 www.skipulagsgatt.is.