Skipulagsauglýsing – Strengfell og Krossholt
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á aðalskipulagi:
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 22. september 2026 að kynna skipulagslýsingu sem fjallar annars vegar um að skilgreina nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði við Strengfell ofan Bíldudals vegna fyrirhugaðs áningar- og útsýnisstaðar og hins vegar um stækkun íbúðarsvæðis ÍB17 við Krossholt vegna einnar nýrrar íbúðarlóðar.
Skipulagslýsingin er auglýst frá 24. september til og með 22. október 2026. Hægt er að skoða skipulagslýsinguna í Skipulagsgátt HSM á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 1109/2026. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðu Vesturbyggðar www.vesturbygdd.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi skipulagslýsinguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is í síðasta lagi 22. október 2026.
Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulags- og umhverfisráðs og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.
