Hoppa yfir valmynd

Skipu­lagsaug­lýsing – Þúfneyri

Samkvæmt 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftir­far­andi deili­skipu­lagi:

Deili­skipulag Þúfneyri


Skrifað: 17. apríl 2026

Um er að ræða deiliskipulag fyrir útivistarsvæði á Þúfneyri, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu útivistaraðstöðu. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að reisa litlar þjónustubyggingar, auk þess sem gert er ráð fyrir uppbyggingu áningarstaðar, bílastæða og útivistarstíga.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 20. apríl til 1. júní 2026 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, sem og undir málsnúmeri 427/2026  á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 1. júní 2026.

Skila skal athugasemdum undir málsnúmerinu 427/2026 í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is/+354 575 5300