Hoppa yfir valmynd

Skjald­borg­ar­hátíð 2026

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Skjald­borg verður haldin á Patreks­firði dagana 22.–25. maí 2026. Á dagskrá verða fjöl­breyttar kvik­mynda­sýn­ingar og viðburðir fyrir íbúa og gesti yfir hvíta­sunnu­helgina.


Skrifað: 21. apríl 2026

Sýningar fara fram í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði og er aðgangur að öllum heimildamyndum án endurgjalds. Samhliða kvikmyndasýningum verða haldnir ýmsir viðburðir í bænum, meðal annars skrúðganga, plokkfiskveisla og limbókeppni, auk þess sem kynnt verða verk í vinnslu og sýndar myndir úr safni Kvikmyndasafns Íslands.

Hátíðarpassi veitir aðgang að allri dagskrá, þar á meðal viðburðum yfir helgina. Lokahátíð fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar að lokinni skrúðgöngu og verðlaunaafhendingu.

Nánari upplýsingar um dagskrá og heiðursgest verða kynntar fljótlega. Hægt er að fylgjast með á heimasíðu hátíðarinnar og samfélagsmiðlum.