Skjaldborgarhátíðin 2025
Skjaldborg — Hátíð íslenskra heimildarmynda verður haldin um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði dagana 6. til 9. júní. Skjaldborg er kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og eina íslenska kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir.
Gæðastundir í Skjaldborgarbíói, skrúðganga, plokkfiskveisla, limbókeppni og vornóttin á Patreksfirði móta lykilviðburð fyrir heimildamyndahöfunda og áhugafólk um heimildamyndir á Íslandi. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda og íbúar eru hvattir til að kynna sér hana nánar á heimasíðu hátíðarinnar.
Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar en hátíðarpassi veitir aðgang að:
- allri dagskrá hátíðarinnar
- sjávarréttarveislu á sunnudagskvöldinu
- plokkfiskboði kvenfélagsins á laugardagskvöldinu
- partýi og bingói á laugardagskvöldinu
- lokaballi, verðlaunaafhendingu og limbókeppni hátíðarinnar
- sundlauginni alla helgina
- tjaldsvæðinu alla helgina