Skóladagatölin í þitt dagatal
Skóladagatöl grunnskóla og leikskóla 2026-2027 eru nú aðgengileg á rafrænu formi sem hægt er að flytja inn í dagatalsforrit í síma, tölvu eða öðrum snjalltækjum. Einnig er í boði sameiginlegt dagatal fyrir fjölskyldur sem eiga börn á báðum skólastigum. Í dagatölunum eru meðal annars merktir starfsdagar, frídagar, skertir dagar og skráningardagar.
Rafrænu dagatölin eru á .ics-skráarsniði og má flytja þau inn í flest algeng dagatalsforrit, svo sem Google Calendar, Outlook og Apple Calendar.
Hægt er að velja um þrjár útgáfur: skóladagatal grunnskóla, skóladagatal leikskóla og sameiginlegt skóladagatal grunn- og leikskóla. Sameiginlega dagatalið hentar þeim sem eiga börn á báðum skólastigum og kemur í veg fyrir að sameiginlegir viðburðir birtist tvisvar í dagatalinu.
Rafrænu dagatölin eru birt með fyrirvara um mögulegar villur. Ef misræmi er á milli rafræns dagatals og PDF-útgáfu gilda upplýsingar í PDF-skóladagatalinu.
Hvernig bæti ég dagatalinu við?
Fyrst er viðeigandi .ics-skrá sótt neðst í þessa frétt og síðan opnuð í síma eða tölvu. Flest dagatalsforrit bjóða þá upp á að bæta viðburðunum beint við dagatalið. Ef skráin opnast ekki sjálfkrafa er yfirleitt hægt að flytja hana inn í gegnum stillingar dagatalsforritsins.