Skólasetningar
Grunnskólastarf í Bíldudalsskóla, Patreksskóla og Tálknafjarðarskóla hefst á ný í vikunni og byrjar með skólasetningum.
Skólasetningar verða allar miðvikudaginn 20. ágúst.
- Bíldudalsskóli: Við Gamla skóla (safnaðarheimilið) kl. 10:00
- Patreksskóli: Í matsal skólans kl 10:00
- Tálknafjarðarskóli: Í matsal skólans kl. 12:00
Eftir setningu fara nemendur með umsjónarkennurum sínum í skólastofur.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 21. ágúst.
Skólarnir sjá nemendum fyrir öllum nauðsynlegum námsgögnum, en nemendur útvega þó sjálfir viðeigandi fatnað s.s. í útivist, íþróttir og sund.