Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Skóla­stjóri Tálkna­fjarð­ar­skóla

Vest­ur­byggð óskar eftir að ráða skóla­stjóra Tálkna­fjarð­ar­skóla. Leitað er að metn­að­ar­fullum leið­toga til að stýra fram­sæknum skóla í nýjasta sveit­ar­fé­lagi landsins.


Skrifað: 22. maí 2024

Tálknafjarðarskóli er samrekinn grunn- og leikskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 35 nemendur, þar fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.

Einkunnarorð skólans eru jákvæðni – samvinna – skemmtun – þrautseigja.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg forysta og skólaþróun
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans
  • Samstarf við ýmsa aðila skólasamfélagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla er skilyrði
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og þróun skólastarfs er kostur
  • Leiðtogahæfni og metnaður
  • Lipurð, hæfni og virðing í samskiptum ásamt góðu orðspori
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 23. júlí 2024

Umsókn skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi, kynnisbréf og upplýsingar um umsagnaraðila. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfskjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna SÍ og FSL. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Vesturbyggð aðstoðar við að finna húsnæði og veitir flutningsstyrk.

Nánari upplýsingar gefur Arnheiður Jónsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs. Umsóknir skal senda á vesturbyggd@vesturbyggd.is.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

arnheidur@vesturbyggd.is/+354 450 2300