Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Skóla­stjóri — Tálkna­fjarð­ar­skóli

Vest­ur­byggð óskar eftir að ráða skóla­stjóra við Tálkna­fjarð­ar­skóla.

Skóla­stjóri gegnir lykil­hlut­verki í mótun skóla­starfsins og í samstarfi skóla og samfé­lags. Jafn­framt ber skóla­stjóri ábyrgð á starf­semi skólans, rekstri og mannauðs­málum. Við leitum að leið­toga með metnað og einlægan áhuga á fram­þróun í skóla­starfi.


Skrifað: 20. maí 2025

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
  • Fagleg forysta skólans um þróun náms og kennslu og farsæld nemenda
  • Ábyrgð á framþróun í skólastarfi
  • Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
  • Fjármál og rekstur
  • Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Samstarf við skólanefnd, bæjarstjóra og bæjarstjórn

Hæfnikröfur

  • Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem varða skólastarf
  • Þekking á stafrænni tækni í skólastarfi
  • Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Leiðtogafærni, metnaður og framsýni
  • Jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2025

Sótt er starfið á heimasíðu Hagvangs. Nánari upplýsingar veitir Elín Dögg Ómarsdóttir á netfangið elin@hagvangur.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilsskrá ásamt kynningarbréfi.

Um fullt starf er að ræða.

Vesturbyggð býður upp einstaka náttúru, rólegt umhverfi og gott samfélag. Svæðið er kjörið fyrir þá sem sækjast eftir jafnvægi milli vinnu og einkalífs, fjölbreyttum útivistarmöguleikum og nálægð við haf og fjöll. Í Vesturbyggð er samheldið samfélag sem leggur áherslu á sjálfbærni, menntun og velferð. Umhverfið er tilvalið fyrir þá sem vilja taka þátt í líflegu og skapandi umhverfi.

Í öllum skólum Vesturbyggðar hefur Heillaspor verið innleitt, sem er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í skóla- og frístundastarfi. Mikil áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu.

Tálknafjarðarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli staðsettur á Tálknafirði. Í skólanum eru um 32 nemendur og 12 starfsmenn. Þar er lögð áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO-skóli, sem endurspeglar skuldbindingu hans til sjálfbærni, heilbrigðis og alþjóðlegrar menntunar. Skólinn einkennist af mjög góðu og rólegu andrúmslofti þar sem öllum á að líða vel.