Sláttur og hirðing 2026 og 2027
Sveitarfélagið gerir verðfyrirspurn í slátt á afmörkuðum opnum svæðum sveitarfélagsins á Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði
Skrifað: 9. apríl 2026
Verkið skal framkvæma samkvæmt útboðsgögnum sem hægt er að fá afhent á vesturbyggd@vesturbyggd.is
Yfirlit og framkvæmd verks
Verkið felur í sér slátt á opnum svæðum sveitarfélagsins samkvæmt nánari tilvísun verkkaupa, heildarsvæði er samtala magnskrár fyrir Bíldudal, Tálknafjörð og Patreksfjörð með þeirri margföldun sem kemur fram í magnskrá. Um er að ræða gróin svæði meðfram götum og göngustígum ásamt tjaldstæði og lóðum við mannvirki í eigu sveitarfélagsins. Svæðin eru mismunandi góð til sláttu, eins er farið fram á mismunandi fjölda yfirferða á hverju svæði yfir sumartímann, eins og fram kemur í magnskrá.
Verktíminn er frá 20 maí 2026 til og með 30.september 2027.
Óskað er eftir fastri árlegri krónutölu en verð helst milli ára óbreytt. Nánari tímasetningar eru ákveðnar af verkaupa og verktaka.
Vakin er athygli á að um er að ræða svæði á Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði.
Heimilt er að skila inn fyrir hvert svæði, eða heildar tilboð fyrir öll svæðin. Tilboð skilast á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is
Verkkaupi metur að loknu útboði hvað er hagkvæmast, en heimilt verður að taka tilboði í einstakan byggðakjarna eða öll svæði ef svo ber við.
