Snjór við sorpílát og geymslur
Nú er kominn vetur með snjó og hálku og það getur þýtt erfiðara aðgengi að sorpílátum hjá okkur.
Skrifað: 7. janúar 2025
Íbúar eru hvattir til að moka frá sorpílátum og sorpgeymslum til að auðvelda sorphirðumönnum að tæma sorpílátin. Hjálpumst að við að halda umhverfinu okkar hreinu og snyrtilegu og auðveldum starfsmönnum Kubbs að tæma sorpílátin hjá okkur.
Jafnframt er minnt á flokkunarkrárnar fyrir endurvinnanlegt efni ef plássið er farið að minnka í tunnunum eftir jólahátíðina.