Sólmyrkvagleraugu fyrir íbúa
Vesturbyggð gefur öllum íbúum sveitarfélagsins sólmyrkvagleraugu. Íbúar geta nú sótt þau í íþróttamiðstöðvarnar.
Þann 12. ágúst næstkomandi verður sólmyrkvi sem mun sjást í allri Vesturbyggð og mun hann vara lengst á öllu Íslandi á Látrabjargi. Að því tilefni gefur sveitarfélagið öllum íbúum sólmyrkvagleraugu. Þau má nú sækja í íþróttamiðstöðvarnar:
- Íþróttamiðstöðina á Tálknafirði, Sveinseyri
- Bröttuhlíð á Patreksfirði, Aðalstræti 55
- Byltu á Bíldudal, Hafnarbraut 3
Sólmyrkvagleraugun eru úr silfurhúðaðri filmu sem síar skaðlega geisla og hleypir aðeins örlitlu ljósi í gegn. Þau uppfylla alla viðurkennda öryggisstaðla. Það er mjög hættulegt að horfa beint á sólina án slíkra gleraugna þar sem innrauðir og útfjólubláir geislar sólarinnar geta brennt sjónhimnina og valdið varanlegum augnskaða. Venjuleg sólgleraugu duga ekki þar sem þau sía ekki skaðlega geislun nægilega vel.
Gleraugun þarf að hafa á sér allan tímann sem deildarmyrkvinn varir, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvanum sjálfur stendur, þegar sólin er alveg hulin, má taka þau af. Sólmyrkvagleraugun eru ekki einnota og má nota við fleiri tilefni.
Þótt nóg sé til af gleraugum fyrir alla íbúa eru þeir beðnir um að taka aðeins ein gleraugu á hvern íbúa heimilisins, svo tryggt sé að allir fái.
Opnunartímar
Brattahlíð
- Mánudagur08:00 – 21:30
- Þriðjudagur08:00 – 21:30
- Miðvikudagur08:00 – 21:30
- Fimmtudagur08:00 – 21:30
- Föstudagur08:00 – 20:30
- Laugardagur10:00 – 18:00
- Sunnudagur10:00 – 18:00
Opnunartímar
Bylta
- Mánudagur09:00 – 20:00
- Þriðjudagur09:00 – 20:00
- Miðvikudagur09:00 – 20:00
- Fimmtudagur09:00 – 20:00
- Föstudagur09:00 – 19:00
- Laugardagur10:00 – 15:00
- Sunnudagur10:00 – 15:00
Opnunartímar
Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði
- Mánudagur09:00 – 21:00
- Þriðjudagur09:00 – 21:00
- Miðvikudagur09:00 – 21:00
- Fimmtudagur09:00 – 21:00
- Föstudagur09:00 – 20:00
- Laugardagur10:00 – 18:00
- Sunnudagur10:00 – 18:00
