Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Staða skrif­stofu­manns á Patreks­firði

Sýslu­mað­urinn á Vest­fjörðum auglýsir laust til umsóknar tíma­bundið starf skrif­stofu­manns á skrif­stofu embætt­isins á Patreks­firði.


Skrifað: 10. júní 2025

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla
  • Samskipti og aðstoð við viðskiptavini
  • Skrifstofu- og ritarastörf
  • Önnur tilfalli verkefni í málaflokkum sem sinnt er hjá embættinu

Hæfniskröfur

  • Reynsla af skrifstofustörfum æskileg
  • Jákvæðni, þjónustulund og góðir skipulags- og samkiptahæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta unnið undir álagi
  • Metnaður og áreiðanleiki í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslensku- og enskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2025

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Starfið er tímabundið til 1. október með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Þrjár starfsstöðvar eru innan embættisins: Á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru 17 í 14.8 stöðugildum. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.

Sýslumenn eru í fremstu röð í stafrænni stjórnsýslu og hafa metnað til að veita skjóta og góða þjónustu. Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi. Nánar má fræðast um embætti sýslumanna á vefnum www.island.is á slóðinni www.syslumenn.is.

Starfshlutfall er 100%.

Nánari upplýsingar veita Jónas B. Guðmundsson á netfangið jonas.gudmundsson@syslumenn.is og í síma 458 2400, og Gabríela Aðalbjörnsdóttir á netfangið gabriela@syslumenn.is í síma 458 2400.