Hoppa yfir valmynd

Staða skrif­stofu­manns á Patreks­firði – Tíma­bundið starf

Sýslu­mað­urinn á Vest­fjörðum auglýsir lausa til umsóknar stöðu skrif­stofu­manns á skrif­stofu embætt­isins á Patreks­firði frá og með 1. febrúar 2026 til og með 31. mars 2027.


Skrifað: 17. desember 2025

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla.
  • Samskipti og aðstoð við viðskiptavini.
  • Skrifstofu-, ritara- og gjaldkerastörf.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem sinnt er hjá embættinu.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.
  • Jákvæðni, þjónustulund og góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
  • Fumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi.
  • Metnaður og áreiðanleiki.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli skilyrði.
  • Almenn kunnátta í ensku. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar 2026

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Umsókn um starfið þurfa að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um meðmælendur auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Um embættið

Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Þrjár starfsstöðvar eru innan embættisins,á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru 16 í 14,3 stöðugildum.

Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.

Sýslumenn eru í fremstu röð í stafrænni stjórnsýslu og hafa metnað til að veita skjóta og góða þjónustu.

Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veitir

Jónas B. Guðmundsson

Tölvupóstur: jonas.gudmundsson@syslumenn.is

Sími: Sími: 4582400

Gabríela Aðalbjörnsdóttir

Tölvupóstur: gabriela@syslumenn.is

Sími: Sími: 4582400