Starfsmaður á Bíldudalsflugvelli
Isavia leitar að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa við flugvallarþjónustu á Bíldudalsflugvelli. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér margvísleg verkefni sem tengjast daglegum rekstri og þjónustu flugvallarins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sjá um daglegt eftirlit, rekstur og viðhald flugvallarmannvirkja og búnaðar
- Tryggja örugga og hnökralausa starfsemi flugvallarins í samræmi við verklag og reglur
- Annast snjóruðning og hálkuvarnir til að tryggja öruggar aðstæður fyrir flugumferð allt árið um kring
- Halda uppi samskiptum við flugumferð í gegnum flugradíó (AFIS)
- Sinna björgunar- og slökkviþjónustu flugvallarins
- Bregðast við atvikum og tryggja viðeigandi viðbrögð við ófyrirséðum aðstæðum
- Taka þátt í þjálfun og viðhaldi á hæfni sem snýr að öryggi og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf og vinnuvélaréttindi - Frumnámskeið
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af slökkvistörfum og snjóruðningi er kostur
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Gott vald á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2026
Til að geta sinnt flugvallarþjónustu þarf viðkomandi að ljúka grunnnámi í bæði flugvallarþjónustu og flugradíó. Standast þarf læknisskoðun og þrekpróf til að geta sinnt slökkviþjónustu.
Unnið er á vikuvöktum ásamt bakvakt. Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Páll Janus Hilmarsson umdæmisstjóri, pall.hilmarsson@isavia.is. Umsóknarfrestur er til 18. október
Vegna kröfureglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að standast bakgrunnsskoðun lögreglu og vera með hreint sakavottorð.
Sótt er um í gegnum heimasíðu Isavia.