Starfsmaður í félagsstarf eldra fólks á Bíldudal
Vesturbyggð óskar eftir jákvæðum og sjálfstæðum starfsmanni til að sinna félags- og heilsueflandi starfi eldra fólks á Bíldudal.
Starfið felst meðal annars í að skipuleggja fjölbreytta samveru og stuðla að virkni, góðum samskiptum og jákvæðu félagsstarfi. Viðkomandi tekur einnig þátt í heilsueflandi verkefnum og samstarfi við starfsfólk Vesturbyggðar, heilsugæslu og aðra samstarfsaðila.
Um er að ræða hlutastarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Anna Vilborg Rúnarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, í síma 861 8484 eða á netfanginu anna@vesturbyggd.is, og tekur hún einnig við umsóknum.