Starfsmaður sumarfrístundar – Patreksskóli
Viltu slást í hóp starfsmanna sem hafa starfsgleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leiðarljósi? Meðal áherslna Patreksskóla er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu.
50 – 100 % starf frá og með 25. maí 2026 eða eftir samkomulagi.
Starfsmaður sumarfrístundar aðstoðar nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði og tekur þátt í skipulögðu starfi leikjanámskeiðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í leik- eða grunnskóla æskileg
- Menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Vilji til að bæta við þekkingu sína
- Stundvísi
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2026
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar veitir Jónína Helga Sigurðardóttir Berg, skólastjóri Patreksskóla. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.