Hoppa yfir valmynd

Stóra upplestr­ar­keppnin fór vel fram

Stóra upplestr­ar­keppnin fór fram við hátíð­lega athöfn í Patreks­fjarð­ar­kirkju miðviku­daginn 3. júní.


Skrifað: 5. júní 2026

Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Í fyrstu umferð voru lesin brot úr skáldsögunni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson. Í annarri umferð gátu nemendur valið úr 10 ljóðum eftir ýmis ljóðskáld sem áttu það öll sameiginlegt að fjalla um fugla í íslenskri náttúru. Í þriðju umferð lásu nemendurnir upp ljóð að eigin vali.

Í fyrsta sæti var Fanndís Fía Pálsdóttir og í öðru sæti var Óskar Elí Ísaksson, bæði úr Patreksskóla, og fengu þau sitt hvort gjafabréfið og blómvöndinn. Dómnefnd keppninnar, sem var að þessu sinni skipuð Ásdísi Ásgeirsdóttur, Ásgeiri Sveinssyni og Bergdísi Þrastardóttur, hrósuðu þeim sérstaklega fyrir góðan upplestur og örugga framkomu.